Tíðindi

Vara samkynhneigða við Sikiley

  25/06/2012október 24th, 2021No Comments

Ferðabókaútgefandinn Frommers í Bandaríkjunum varar samkynhneigða við ferðalögum til Sikileyjar á Ítalíu og hefur sú viðvörun ekkert með mafíuna að gera. Heimamenn eru einfaldlega lítt hrifnir af samkynhneigð og láta það óspart í ljós á götum og opinberum stöðum.

Bærinn Taormina á Sikiley mun vera eini staðurinn á eyjunni þar sem samkynhneigðir geta hagað sér eins og samkynhneigðir án þess að fá bágt fyrir

Er óalgengt að svo vinsæll aðili sem Frommers er, en fyrirtækið selur átta milljónir ferðabóka hvert einasta ár, vari við ferðalögum innan Evrópu fyrir ákveðinn hóp fólks en fram kemur í nýjasta hefti Ítalíu að hyggist samkynhneigðir heimsækja eyjuna fögru sé ráð að láta lítið bera á snertingu, faðmlögum eða sýna maka sínum ástríðu eða atlot á almannafæri. Slíkt sé ávísun á hróp og köll frá íbúum í besta falli og í versta falli barsmíðar.

Eini staðurinn á Sikiley þar sem þeir sem hallast að eigin kyni geta þokkalega frjálst um annarra manna höfuð strokið sé bærinn Taormina á austurströnd eyjunnar nánast mitt á milli borganna Messina og Catania.

Frommer hefur þó ráð undir rifi fyrir samkynhneigða sem ekki geta án Ítalíu verið. Samkynhneigð sé ekki litin hornauga í borgunum Mílanó, Flórens og Róm og almennt séu borgir og svæði í norðurhluta landsins mun opnari en þau sunnar.