Tíðindi

Dýrtíð á skíðasvæðum Kolóradó

  20/06/2012október 24th, 2021No Comments

Ferðaskrifstofan GB ferðir í samvinnu við Icelandair býður nú fyrst íslenskra ferðaskrifstofa sérstakar skíðaferðir til Klettafjalla í Kolóradó í Bandaríkjunum. Það er vel enda óvíða betra að skíða en í þeim tignarlegu fjöllum.

Hluti skíðasvæðisins í Breckenridge í Klettafjöllum. Kostnaður við skíðaferð til Kolóradó eru töluvert meiri en bara gisting og flug

Þó tilboð GB ferða séu almennt nokkuð góð samkvæmt yfirlegu ritstjórnar Fararheill er langur vegur frá að skíðaferð til Kolóradó flokkist undir ódýran kost. Gróflega reiknað er fólk heilt yfir að fá flugið fram og til baka til Denver á 40 til 60 þúsund krónur í ferðum GB ferða enda hótelverð lægri en finnast hjá helstu hótelleitarvélum.

Boðið er upp á fjögur skíðasvæði í pökkum GB ferða og öll framúrskarandi hvað varðar aðstöðu, þjónustu og brekkur Klettafjalla eru fyrsta flokks. Svæðin fjögur eru Aspen, Vail, Keystone og Breckenridge en sérstaklega þau tvö fyrstnefndu henta sérlega vel fyrir alla þá Íslendinga sem sakna glamúrsársins 2007. Vail og Aspen eru ásamt Whistler í Kanada þau þrjú svæði sem helst trekkja hina vellauðugu og nóg er af þeim um allar trissur.

GB ferðir auglýsa duglegan afslátt af gistingu og skíðapössum svo lengi sem áhugasamir bóka fyrir júlílok. Er þar talað um allt að helmings afslátt af gistingunni á völdum stöðum.

Til dæmis greiðast 199 þúsund krónur fyrir dvöl á ódýrasta hótelinu, Village Hotel, á ódýrasta skíðasvæðinu, Breckenridge, frá 24. nóvember til 2. desember. samkvæmt verðlista GB ferða. Er þar innifalið flug til og frá auk gistingarinnar með morgunverði.

En merkilegt nokk er ekki að sjá að í boði séu ferðir frá flugvelli og að skíðastöðunum sem eru allir í nokkurri fjarlægð frá Denver. Breckenridge og Keystone eru í eins og hálfs stundar akstursfjarlægð frá Denver, Vail er tveggja stunda akstur og ætli fólk til Aspen tekur túrinn allt að fjórum stundum aðra leiðina.

Einfaldast er vitaskuld að leigja bílaleigubíl og deila kostnaði þannig en hafi fólk ekki áhuga á því kostar túr til Breckenridge með skutlu 7.500 krónur á mann aðra leiðina. Til Vail pungar einstaklingur út kringum níu þúsund krónum aðra leiðina með skutlu og til Aspen verður vart komist undir fjórtán þúsund krónum samkvæmt úttekt Fararheill.

Aspen er reyndar nánast of langt frá til að ferð þangað borgi sig því bara í ferðir fram og til baka frá Denver tekur heilan dag af takmörkuðu fríinu.

Skíðapassar eru annar kapituli sem ekki er innifalinn í uppgefnu verði. Gróft virðist dagpassinn á flestar brekkur kosta tólf til fjórtán þúsund krónur. Fjórir til fimm dagar á skíðum kosta ferðalanginn því 40 til 60 þúsund krónur í viðbót við annan kostnað.

Ódýra hótelið í Breckenridge á 199 þúsund krónur með flugi er með þessum viðbótarkostnaði orðið nokkuð dýrara sé hugmyndin að skíða í nokkra daga. Ferðin fyrir tvo fram og til baka til Denver kostar þannig 30 þúsund krónur og skíðapassi í fimm daga eða svo gróflega 60 þúsund krónur á mann eða 120 þúsund samtals fyrir tvo.

Þannig kostar ferð til Breckenridge á ódýrasta herbergi á ódýrasta hótelinu samtals 548 þúsund krónur fyrir par eða hjón eða 274 þúsund á mann. Það þýðir að hver dagur í ferðinni kostar manninn rúmlega 34 þúsund krónur. Það er fjarri því fyrir alla.

Heimasíða GB ferða hér.


View Skíðasvæði í boði hjá GB ferðum í Kolóradó in a larger map