Sért þú ekki einn af þeim hundruðum útrásarvíkinga sem líklegast fela milljónir króna á bak við pósthólf í Tortóla er Disneyland í París sennilega, ólíkt bílaumboðinu Brimborg, ekki góður staður til að vera á.

Dagur í Disneylandi nálægt París er tvöfalt dýrara fyrir fjögurra manna fjölskyldu en dagsferð í Lególand í Danmörku
Skemmtigarðurinn, sem heillar unga á öllum aldri, fagnar tvítugsaldrinum þetta árið og er af því tilefni extra sérstakar sýningar og uppákomur í gangi í allt sumar og vel fram á haustið. Þangað er, aldrei þessu vant, tiltölulega ódýrt að komast enda ein fjögur flugfélög sem fljúga milli Keflavíkur og Parísar í sumar og hafa aldrei verið fleiri.
En þá eru góðu fréttirnar sagðar. Því detti fjölskyldu í hug að gaman væri nú að leyfa börnunum að koma til Mikka, Guffa, Andrésar og allra hinna sem Walt Disney gerði fræga, er lágmarksverð inn í annan af tveimur skemmtigörðum er Disneylandi tilheyra litlar 40 þúsund krónur. Inni í því er ekkert innifalið annað en aðgangurinn.
Disneyland í París skiptist í tvo mismunandi garða. Annars vegar Disneyland garðinn og hins vegar Walt DisneyStudios garðinn. Fái börnin ekki nóg af einum garðinum þarf að grípa veskið einn ganginn enn og punga út alls 38.870 krónum miðað við gengi dags 25. maí 2012. Og það verð gildir aðeins ef keyptir eru miðar með fyrirvara á netinu. Hugsi fólk ekki fyrir slíku með fyrirvara heldur mæti á staðinn hækkar prísinn fyrir fjögurra manna fjölskylduna í báða garða einn dag í litlar 48.43o krónur.
Ekki þarf að fara mörgum orðum um að þær íslensku fjölskyldur sem eiga 40 kall aukreitis fyrir dúllerí einn dag í Disneylandi eru teljandi á fingrum annarrar handar. Er þetta næstum tvöfalt dýrara en fara með familíuna í Lególand í Billund í Danmörku eins og Fararheill hefur sagt frá.
Sennilega eru Íslendingar þó ekki eina fólkið sem blöskrar slíkar upphæðir. Athygli vekur á annars glæsilegri heimasíðu Disneylands í Frakklandi að verðlisti er vandfundinn.
Fyrir þá sem engu að síður vilja láta slag standa býður lestarfyrirtækið Eurostar ferðir bæði frá París og St.Pancreas í London beint til Disneylands. Frá London tekur rúnturinn tvær klukkustundir og 45 mínútur en um 40 mínútur frá París. Miðaverð er misjafnt en frá París á almenningsrými kostar miði á mann um 1.100 krónur.
Heimasíða Disneylands hér.






