Pistlar

Er „vinsælast“ endilega merkilegt?

  24/05/2012No Comments

Seint fá íslenskar ferðaskrifstofur sérstök verðlaun fyrir auglýsingar og kynningar á áfangastöðum sínum. Slíkt er meira og minna copy/paste áfangastaða á milli. Allir eru þeir ákaflega spennandi, verðlag frábært og sólin skín alla daga ársins.

Fjöllin fyrir ofan Benídorm á Spáni í janúar 2011. Þó undantekning sé er ekki hægt að tala um blíðu allan ársins hring við Costa Blanca

Einhverjir hefðu haldið að fyrirtæki í bransanum bæru meiri virðingu fyrir viðskiptavinum sínum en að bjóða upp á tóma yfirborðsmennsku í slíkum kynningum en svo virðist ekki raunin. Óhætt er að segja að meirihluti slíkra kynningar segi áhugasömum ekki nokkurn skapaðan hlut um viðkomandi stað.

Eitt er það þó sérstaklega sem fer fyrir brjóst ritstjórnar Fararheill. Það er þegar ferðaskrifstofurnar auglýsa að einhver áfangastaður sé pottþéttur enda hafi hann verið vinsæll meðal Íslendinga í áraraðir.

Heimsferðir auglýsa nú ferðir til Benídorm á Spáni og falla í þessa gryfju. Benidorm hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í yfir 30 ár, enda er hér að finna eitt öruggasta veðurfar í Evrópu, sól og blíða í yfir 300 daga á ári.

Við þetta er tvennt að athuga:

  • Úrval pakkaferða sem Íslendingum hafa boðist síðastliðin 30 ár hefur mikið til takmarkast við Kanaríeyjar, Mallorca og Benídorm þó reyndar hafi úr ræst allra síðustu ár. Fáist bara ein eða tvær tegundir tannkrems í Kaupfélaginu má alveg ljóst vera að þær tegundir seljast grimmt burtséð frá gæðum. Að kalla þær tegundir vinsælar vegna þess er bara kjánalegt.
  • Þá er og tóm þvæla að á Benídorm sé sól og blíða yfir 300 daga á ári. Vissulega eru sólardagar í borginni 325 á ársgrundvelli en að blíða fylgi alla daga er langsótt í meira lagi. Vetrarmánuðir á þessum slóðum geta mætavel verið tiltölulega kaldir og hryssingslegir. Ekki er lengra en eitt og hálft ár síðan snjóaði í fjöllum í héraðinu.