Tíðindi

Samkeppni á suðustigi í fluginu

  24/05/2012No Comments

Óhætt er fyrir landsmenn að opna kampavínið og draga fram fínustu osta og tilheyrandi. Samkeppnin í fluginu hérlendis er orðin feit staðreynd!

Nánast í heila viku hafa flugfélögin sent landsmönnum ýmis konar tilboð til og frá landinu

Það fullyrðir ritstjórn Fararheill en alla síðustu dagana hefur nánast rignt hinum og þessum tilboðunum yfir landsmenn frá flugfélögunum Icelandair, Iceland Express og Wow Air. Sérstaklega frá þeim tveimur síðastnefndu og ástæðan ofur einfaldlega sú að nú eru aðeins tvær vikur í að Wow Air hefji formlega flug til og frá Keflavíkurflugvelli.

Í dag er fjórði dagurinn í röð sem Wow býður sértilboð til tveggja áfangastaða sinna og fæst til miðnættis í kvöld flug aðra leiðina með sköttum og gjöldum til London og Kraká í Póllandi á aðeins 13.900 krónur.

Iceland Express ætlar sér þó greinilega ekki að verða útundan í samkeppninni. Eftir að hafa auglýst undanfarna daga flugfargjöld til ýmissa borga á 14.900 krónur aðra leiðina bætir flugfélagið aldeilis um betur í dag. Frá og með hádegi og næstu 24 stundir bjóða þeir flug aðra leiðina til London, Edinborgar, Kölnar, Billund og Gautaborgar á aðeins 9.900 krónur.

Það er geggjað verð en að sama skapi hundfúlt fyrir þá einstaklinga sem keyptu tilboðsfargjöld flugfélagsins á mánudaginn var þegar flug til London og Gautaborgar fengust á 14.900 krónur.

Engu að síður er blússandi samkeppni þessa dagana í flugsamgöngum til og frá landinu og sennilega höfum við ekki séð fyrir endann á tilboðum ennþá. Ekki má gleyma að eitt besta lágfargjaldaflugfélag heims, Norwegian, hefur flug hingað til lands í byrjun júní og keppir þá við Icelandair á flugleiðinni til Osló í Noregi. Ritstjórn telur óhætt að veðja eins og þúsund krónum að íslenska flugfélagið mun fljótlega bjóða sértilboð til þeirrar borgar.

Heimasíða Iceland Express hér. Heimasíða Wow Air hér. Heimasíða Icelandair hér.