Tíðindi

Icelandair tekur slaginn við Norwegian

  08/05/2012No Comments

Sú var tíðin að fyrir flug til Osló í Noregi og heim aftur þurfti að punga út árslaunum lélegs verkamanns og helst handlegg og fótlegg í þokkabót. Nú eru breyttir tímar.

Icelandair hefur lækkað töluvert verð til og frá Osló í sumar og er ekki mikið dýrara en lágfargjaldaflugfélagið Norwegian

Norska lágfargjaldaflugfélagið Norwegian mun hefja flug milli Osló og Keflavíkur í byrjun júní en sú flugleið hefur verið einokuð af Icelandair hér um aldaskeið ef frá er talið tímabundið sumarflug Iceland Express fyrir ári síðan.

Skoði fólk verð til Osló þetta sumarið á vef Icelandair skýtur strax eitthvað undarlegt í augu. Þar er töluvert af fargjöldum sem virka nánast á sanngjörnu verði. Og staðreyndin er að þó flugfélagið auglýsi ekki staf um töluverða lækkun á verði á þessari flugleið er aðeins ein ástæða fyrir þeirri lækkun. Sú ástæða heitir Norwegian.

Aukin samkeppni er semsagt að skila sér til neytenda í feitum verðlækkunum hjá Icelandair en samanburður á lægstu mögulegu fargjöldum í boði hjá báðum flugfélögum í júní, júlí og ágúst leiða í ljós að íslenska flugfélagið er ekki fjarri því að bjóða svipuð fargjöld og norska lágfargjaldaflugfélagið þegar best lætur.

Athugun ritstjórnar Fararheill á vef Norwegian leiðir í ljós að í júní er allra ódýrasta fargjaldið til Oslói og heim aftur á 38.305 krónur þann 7. til 17. júní. Allra ódýrasta verð hjá Icelandair í sama mánuði reynist vera sléttar 42.000 krónur á sömu dagsetningum. Hafa skal í hug að greiða þarf aukalega fyrir farangur hjá Norwegian og munurinn því lítill sem enginn.

Í júlímánuði bjóða Norðmennirnir best 39. 810 krónur 12.- 29. júlí meðan Icelandair býður best 42.000 og það á fleiri en einni dagsetningu. Aftur er munurinn lítill sem enginn.

Það er í raun aðeins í ágúst sem aðeins sker á milli verðlags hjá flugfélögunum tveimur. Þá fæst hjá Norwegian far út 16. og heim aftur 21. ágúst á 37.138 krónur. Það besta sem Icelandair býður þann mánuðinn er 45.800 3. – 10. ágúst.

Icelandair er því að mæta samkeppninni við Norwegian og er það vel enda njóta allir Íslendingar þess að verð á flugfargjöldum lækki þó aðeins sé það líklega tímabundið. Gallinn þó kannski sá að vélar Icelandair eru hundgamlar samanborið við nýjar eða nýlegar vélar Norwegian og þó afþreyingarkerfi Icelandair sé fjölbreyttara en hjá Norwegian getur íslenska félagið ekki boðið upp á nettenginu allt flugið eins og hið norska.

* Samanburður gerður milli 22 og 23 þann 7. maí 2012. Hafa skal í huga að verð geta breyst afar skjótt hjá flugfélögum heimsins. Gengi miðað við alþjóðlegt miðgengi krónu gagnvart norskri krónu á sama tíma.