Vildarpunktavinir Icelandair komast í haust til Denver í Kolóradó fyrir 19.950 krónur hvora leið eða sem nemur 39.900 vildarpunktum. Hægt er að gera töluvert verri kaup en það.

Nú er ódýrt komist til Denver sem er nýjasta borgin á flugleið Icelandair

Nú er ódýrt komist til Denver sem er nýjasta borgin á flugleið Icelandair

Icelandair mun loks hefja flug til Denver í Kolóradó í næstu viku en staðurinn er sá sjöundi sem flugfélagið býður í beinu flugi til og frá Keflavík. Hinir eru Washington, Seattle, Minneapolis, New York, Boston og Orlando.

Til hádegis á morgun, 4. maí, býðst af þessu tilefni ofangreint vildarklúbbstilboð til borgarinnar og mega menn vera Jóakim Aðalönd ef þeim finnst ekki nokkur djús í prísnum. Til samanburðar má geta að hefðbundið gjald fyrir farið í júlí fæst vart ódýrar en á 160 til 170 þúsund krónur.

Ekki nóg með að Denver bjóðist á punktatilboði heldur og Washington, Hamborg og Osló, Bergen, Þrándheimur og Stafangur í Noregi.

Tilboðin til Denver, Washington og Hamborg ber að nýta frá miðjum ágúst og fram til september og október en tilboðin til Noregs gilda strax frá 10. maí

Hafa skal í huga að gjöld og skattar eru ekki innifaldur í vildarpunktatilboðum og greiðast aukalega.

Heimasíða Icelandair hér.