Tíðindi

40 þúsund kall beint til Andalúsíu

  03/05/2012No Comments

Þá sjaldan maður lyftir sér upp er ekki verra að borga sem minnst fyrir herlegheitin. Nú er komist þráðbeint til Andalúsíu á Spáni með Heimsferðum fyrir 39.950 krónur fram og tilbaka.

Dómkirkjan í vestlægustu borginni í Andalúsíu á Spáni. Þangað fæst nú tilboðsverð með Heimsferðum

Það er langbesta tilboðið sem ritstjórn Fararheill hefur rekist á í beinu flugi til Spánar sem er jú fyrirheitna land sólkdýrkenda. Það hangir þó saman við að tveir ferðist saman en þá gildir svokallað 2-fyrir-1 tilboð að aðeins þann 12. maí næstkomandi. Heildarverð er því að lágmarki 79.900 krónur en deilist á tvo.

Flogið er til flugvallarins í borginni Jerez de la Frontera skammt norður af hafnarborginni Cadiz en báðir staðir eru vel þess virði að heimsækja. Þá er ekki langt til Portúgal héðan ef sá gállinn er á fólki enda verðlag á Algarve aðeins vænlegra en á Costa del Sol almennt talað.

Heimasíða Heimsferða hér.