Hvað getur maður sagt um Svisslendinga? Forríkir, hlutlausir og búa allir sem einn í eða við stórkostlega fjallasali Alpanna. Svo kunna þeir aldeilis að búa til myndbönd til að plata erlenda ferðamenn til að kíkja.

Slíka náttúrufegurð þarf ekkert að auglýsa.

Slíka náttúrufegurð þarf ekkert að auglýsa.

Eins og Fararheill greinir reglulega frá eru fáar þjóðir sem ekki leggja sitt allra besta á borð þegar kynna á land og þjóð fyrir erlendu fólki. En sumir eru framsæknari en aðrir og í þessum bransa hafa auglýsingar svissneskra ferðamálayfirvalda vakið extra athygli.

Í stað þess að básúna fjallafegurð, osta, gauksklukkur og allt þetta hefðbundna hefur kúrsnum algjörlega verið snúið og eins og meðfylgjandi landkynningarmyndband þeirra ber með sér. Þar er lögð áhersla á framúrskarandi snyrti- og fagmennsku.

Húmor hefur náð yfirhöndinni og fyrir vikið eru fá landkynningarmyndbönd sem fengið hafa meiri athygli á netinu. Enda ekki óeðlilegt ef mannlífið er eitthvað þessu líkt. Bara muna að hafa fúlgur fjár meðferðis ef ferðinni er heitið hingað. Krónan okkar er afskaplega duglaus hér.