Tíðindi

Stansted besti lágfargjaldaflugvöllurinn

  26/04/2012janúar 30th, 2014No Comments

Fjórir af fimm bestu flugvöllum heims árið 2012 eru í Asíu samkvæmt World Airport Awards. Incheon flugvöllurinn í Seoul í Suður Kóreu er þeirra bestur. Stansted flugvöllur í Englandi þykir hins vegar sá besti sem nánast eingöngu sinnir lágfargjaldaflugfélögum.

Árlega birtir vefmiðillinn Skytrax lista sinn yfir bestu flugvelli heims en sá listi er afrakstur viðtala við tólf milljón flugfarþega hvarvetna í heiminum. Þessi fjöldi gefur flugvöllum heims einkunn í 39 mismunandi flokkum og ætti því niðurstöðurnar að vera ansi raunhæfar.

Flugvellirnir eru þannig metnir eftir þjónustu, úrvali verslana, neyðarþjónustu, afgreiðsluhraða, verðlagi, töfum og ýmsu öðru sem skiptir farþega og flugfélög máli.

Næst á eftir Incheon í röðinni er Changi flugvöllurinn í Singapore, þá alþjóðaflugvöllurinn í Hong Kong, Schiphol í Amsterdam tekur fjórða sætið og Beijing Capital er sá fimmti.

Sem fyrr segir þykir Stansted vera bestur í flokki lágfargjaldflugvalla eða flugvalla hvers megin starfsemi snýst um þjónustu við lágfargjaldaflugfélög og viðskiptavini þeirra. Annar enskur flugvöllur, Heathrow, þykir bjóða best úrval verslana.