Eru sólkrem sem flestir kaupa og bera á sig í tonnavís árlega verri en ekkert? Veita þau í raun einhverja vörn? Af því fer mjög tvennum sögum.

Rannsóknir sýna að sólkrem veita oft á tíðum falska öryggiskennd og eru sum hver full af efnum sem órannsökuð eru

Rannsóknir sýna að sólkrem veita oft á tíðum falska öryggiskennd og eru sum hver full af efnum sem órannsökuð eru

Æði margt neikvætt virðist vera við sólkrem þau sem fólk brúkar þegar sól skín á fölan kroppinn og ekki úr vegi að fjalla um enda lítil umræða hérlendis um hugsanlega skaðsemi slíkra krema.

Við leit á netinu finnst aragrúi greina um skaðsemi slíkra krema en tiltölulega auðvelt væri að hundsa slíkt sem tómar samsæriskenningar og tjöru. Nema kannski vegna þess að stofnanir á borð við Bandarísku lyfjustofnunina, FDA, staðfesta að engar einustu rannsóknir sýni að sólvörn af nokkru tagi verndi fólk gegn kvillum á borð við húðkrabbameini sem staðfest er að er mun algengara meðal sóldýrkenda en annarra.

Ein bandarísk rannsóknarstofnun, Environmental Working Group, gefur árlega út skýrslu um sólkrem, virkni og hver eigi að forðast og er sennilegast eini aðilinn sem reglulega lætur vísindamenn rannsaka hinar ýmsu tegundir sólkrema. Könnun þeirra frá 2010 á virkni og vörn yfir 500 tegunda sem í boði eru sýndi hrapallegar niðurstöður og gátu vísindamennirnir einungis mælt með 8 prósent þeirra sólkrema og áburðar sem rannsakaður var.

Reyndist vandamálið vera ýmis efni í sólkremum sem vafi leikur á að séu ýkja holl. SPF stuðullinn, sem segja á til um styrk sólvarnarinnar, reyndist ekki standast þegar upp var staðið. Þá voru í allnokkrum tegundum mikið af A vítamíni sem nýlegar rannsóknir benda til að auki beinlínis hættuna á húðkrabbameini.

Sjálfsagt er fyrir fólk að skoða vel heimasíðu EWG þar sem birtir eru listar yfir þau sólkrem sem kannski eru þess virði og eins hin sem eru það ekki. Hér má til að mynda sjá þau sólkrem sem besta einkunn fá í sól og sandi og eru engin þeirra framleitt af risum í bransanum eins og Nivea sem seljast eins og heitar lummur hérlendis.