Tíðindi

Vildarpunktatilboð hjá Icelandair

  24/04/2012desember 23rd, 2013No Comments

Lumi landsmenn á vildarpunktum er óhætt að sperra augun því næsta sólarhringinn til hádegis 25. apríl býður Icelandair sérstök tilboðsverð á flugi sem bókað er með vildarpunktum til nokkurra áfangastaða í lok sumars og haust. Um töluverðan sparnað er að ræða frá hefðbundum fargjöldum.

Í boði eru fimm staðir þetta skiptið. Halifax og Boston vestanhafs og Brussel, Helsinki og Billund austanhafs.

Til Boston þarf næsta sólarhringinn að greiða 37.900 vildarpunkta fyrir ferð fram og aftur til Boston í Bandaríkjunum. Þá skal og greiða skatta og gjöld í viðbót. Þetta tilboð er þó bundið við flug frá 27. ágúst til 12. október en er engu að síður verulega undir hefðbundnu verði á þessari flugleið en gróflega kostar það kringum 90 þúsund krónur.

Til Halifax í Kanada er komist fyrir sama vildarpunktafjölda næstu 24 stundirnar. Ferðatíminn er þó aðeins lengra inn á sumarið eða frá 2. ágúst og fram til 8. október. Ágúst er hreint ágætur mánuðir til heimsóknar á þessar slóðir þó ritstjórn Fararheill finnist ekki mikið til Halifax koma. Aftur er hefðbundið verð á þessari flugleið vart undir 90 þúsund krónum.

Standi vilji til að kynna sér Evrópusambandið á eigin spýtur er hægt að gera það frá 24. ágúst til 21. október á vildarpunktakjörum. Brussel fram og aftur kostar 29.900 punkta til hádegis á morgun.

Ódýrast er að taka flugið til Skandinavíu en til Billund í Danmörku og Helsinki í Finnlandi þarf að negla út 27.900 vildarpunktum plús skattar og gjöld. Það er kannski helst hér sem punktarnir virka hvað minnst enda ágæt samkeppni til Billund og algengt hefðbundið verð frá 30 þúsund krónum og uppúr. Billund er í boði frá 15. september til 22. október en Helsinki frá 15. september til 15. desember.

Eðli málsins samkvæmt er töluvert um smátt letur í tilboðsgjörningi Icelandair. Enginn barnaafsláttur í boði, sætaframboð takmarkað og bóka verður báðar leiðir saman jafnvel þó verð sé auglýst annan legginn í öllum tilfellum. Engu að síður fýsilegt boð miðað við síhækkandi fargjöld flugfélaganna.

Heimasíða Icelandair hér.