Tíðindi

Wow Air opnar ferðaskrifstofu

  24/03/2012september 1st, 2015No Comments

Líkt og flugfélögin Icelandair og Iceland Express hefur hið nýja flugfélag Wow Air nú opnað sína eigin ferðaskrifstofu. Wow Ferðir heitir sú og sérhæfir sig vitaskuld í ferðum á helstu áfangastaði móðurfélagsins en vélar Wow fara í loftið í byrjun júní.

Í forsvari fyrir Wow Ferðir er Lilja Hilmarsdóttir sem margir þekkja enda verið fararstjóri um áraraðir um hin ýmsu lönd heims fyrir ýmsar ferðaskrifstofur.

Ódýrasta ferð sem í boði er á vef Wow Ferða nú er þriggja daga ferð til Kaupmannahafnar í júlí á 79.900 krónur á mann en almennt eru þær ferðir sem í boði eru kringum 120 til 130 þúsund á mann. Eru þær í flestum tilvikum vikuferðir og að mestu til Mið-Evrópu. Sem sagt ekkert nýtt, ferskt eða framandi.

Svo verður, með fullri virðingu fyrir Lilju, að telja það undarlega ráðstöfun að kalla til gamla hunda úr bransanum til að setja ferðaskrifstofuna á laggirnar. Það stemmir svo alls ekki við ungæðingslega markaðssetningu Wow Air sem hins nýja og betra.

En nei, hvað pakkaferðir varðar höldum við okkur í gömlu, góðu bændaferðunum.

Heimasíða Wow Ferða hér.