Árið er 2012 og fjöldi fólks sem starfar á fjölmiðlum landsins hugsar ekki tvisvar um að birta tilkynningu frá einkafyrirtæki sem stóra og mikla frétt. Er nema von að almenningur velti fyrir sér hvað hafi breyst í kjölfar hrunsins.
Þarna er ritstjórn Fararheill að vísa til þeirra frétta á vefmiðlunum Mbl.is, Pressan.is og Eyjan.is í dag að flugrekandinn Iceland Express sé að bæta Köln í Þýskalandi við leiðakerfi sitt. Allir þessir miðlar gerðu mikið úr tilkynningunni, settu hana á forsíðu, og það 99 prósent óbreytta. Það er að segja; blaðafulltrúi Iceland Express skrifar „frétt“ þessara miðla.
Þetta er með öllu óboðlegt gagnvart lesendum og neytendum í landinu að mati Fararheill og á það alls ekki eingöngu við gagnvart tilkynningum Iceland Express heldur öllum slíkum fréttatilkynningum. Sök sér að löngu liðinn er sá tími að ný flugleið flugfélags hérlendis sé einhver stórfrétt nema þá helst hjá sérhæfðum miðlum á borð við Fararheill sem fjalla eingöngu um ferðalög Íslendinga erlendis.
En algjör lágmarkskrafa er að „fréttir“ séu unnar en ekki kokgleyptar og bornar fram á forsíðu sem eitthvað sem stórkostlegu máli skiptir. Ellegar er eingöngu um ókeypis auglýsingu að ræða og um leið ryki kastað í augu lesenda.
Til glöggvunar er hér umfjöllun Fararheill.is, umfjöllun Pressan.is, mbl.is og að síðustu tilkynning sem send var fjölmiðlum í morgun. Dæmi hver sem vill.
FARARHEILL
Iceland Express hefur ákveðið að bæta Köln við áfangastaði sína næsta sumarið og fara þannig í þráðbeina samkeppni við Wow Air sem áður hafði tilkynnt um reglulegar áætlunarferðir þangað.
Fram kemur í tilkynningu að flogið verði tvívegis í viku í allt sumar en fyrsta ferðin verður farin þann 5. júní eða nákvæmlega sama dag og fyrsta flug Wow Air fer í loftið til Kölnar. Hvort það er með ráðum gert eður ei skal ósagt látið.
Verður Köln þriðji áfangastaður Iceland Express í Þýskalandi en einnig er Frankfurt Hahn og Berlín á leiðakerfi flugfélagsins.
Ekki er borgin komin í bókunarkerfi Iceland Express þegar þetta er skrifað og því óljóst hvaða verð eru í boði en ferð með Wow Air 5. til 14. júní kostar ferðalanginn 48.533 krónur.
Flugtímar beggja eru svipaðir líka. Wow Air flýgur út 16.20 og 16.40 og heimflugið er 23.00 og 23:30 frá Þýskalandi. Iceland Express fer frá Keflavík 17.50 og til baka 00.30.
Heimasíða Iceland Express hér. Heimasíða Wow Air hér.
PRESSAN
Iceland Express mun hefja áætlunarflug til Köln í vesturhluta Þýskalands í júní. Flogið verður tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum.
Köln er annar stærsti áætlunarflugvöllur lággjaldaflugfélaga í Þýskalandi en þau flytja þangað um 4,2 milljónir farþega á ári. Borgin er miðstöð menningar, viðskipta og mennta í landinu og býður upp á fjölbreytt skemmtanalíf. Þaðan er líka stutt til Rínardalsins, Dusseldorf, Luxemborgar og Brussel svo dæmi séu tekin og beinar lestarsamgöngur eru frá flugvellinum við Holland, Frakkland og Belgíu.
Við bjóðum Iceland Express hjartanlega velkomið á Köl-Bonn flugvöll og við er stolt af því að geta bætt elsta lággjaldaflugfélagi Íslands í hóp örtfjölgandi alþjóðlegra flugfélaga sem fljúga á Köln-Bonn flugvöll.
Segir Michael Garvens, stjórnarformaður flugvallarins.
Skarphéðinn Berg Steinarsson forstjóri Iceland Express segir ánægjulegt að bæta Köln-Bonn við metnaðarfulla sumaráætlun félagsins og auðvelda þar með fleiri Þjóðverjum að heimsækja Ísland og auka um leið ferðamöguleika Íslendinga í Þýskalandi.
Flugvöllurinn í Köln er vel tengdur við miðborgina en það tekur um 12 mínútur að fara með hraðlest frá flugvellinum inn í miðborg. Þá hentar flugvöllurinn vel til tengiflugs en þaðan er flogið á 115 áfangastaði víðs vegar um heiminn.Fyrsta flugið Iceland Express verður þriðjudaginn 5. júní og síðasta flug sumarins hinn 31. ágúst. Flogið er frá Keflavík kl. 17:50 og lent í Köln klukkan 21:20, þaðan sem flogið er til baka til Keflavíkur kl. 00:30 þar sem lent er kl. 02:25.
FRÉTTATILKYNNING ICELAND EXPRESS
Iceland Express mun hefja áætlunarflug til Köln í vesturhluta Þýskalands í júní. Flogið verður tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum. Köln er annar stærsti áætlunarflugvöllur lággjaldaflugfélaga í Þýskalandi en þau flytja þangað um 4,2 milljónir farþega á ári. Borgin er miðstöð menningar, viðskipta og mennta í landinu og býður upp á fjölbreytt skemmtanalíf. Þaðan er líka stutt til Rínardalsins, Dusseldorf, Luxemborgar og Brussel svo dæmi séu tekin og beinar lestarsamgöngur eru frá flugvellinum við Holland, Frakkland og Belgíu.
“Við bjóðum Iceland Express hjartanlega velkomið á Köl-Bonn flugvöll,” segir Michael Garvens, stjórnarformaður flugvallarins. “Og við er stolt af því að geta bætt elsta lággjaldaflugfélagi Íslands í hóp örtfjölgandi alþjóðlegra flugfélaga sem fljúga á Köln-Bonn flugvöll.”
Iceland Express er annað stærsta fyrirtækið í ferðaþjónustu á Íslandi og á síðasta ári flutti félagið 21 prósent fleiri farþega en á árinu 2010. Góð aukning hefur verið á farþegum í vetur og bókanir fyrir sumarið benda til þess að enn eitt metið verði slegið í farþegaflutningum á þessu ári, enda er almennt reiknað með að ferðamönnum til landsins muni fjölga um allt að 18 prósent.
Skarphéðinn Berg Steinarsson forstjóri Iceland Express segir ánægjulegt að bæta Köln-Bonn við metnaðarfulla sumaráætlun félagsins og auðvelda þar með fleiri Þjóðverjum að heimsækja Ísland og auka um leið ferðamöguleika Íslendinga í Þýskalandi. Iceland Express hefur áralanga reynslu af samskiptum við ferðasöluaðila og aðra í Þýskalandi og gerir nú sölunet félagsins enn víðtækara með því að fljúga til Kölnar,” segir Skarphéðinn.
Flugvöllurinn í Köln er vel tengdur við miðborgina en það tekur aðeins um 12 mínútur að fara með hraðlest frá flugvellinum inn í miðborg. Þá hentar flugvöllurinn vel til tengiflugs en þaðan er flogið á 115 áfangastaði víðs vegar um heiminn.
Fyrsta flugið Iceland Express verður þriðjudaginn 5. júní og síðasta flug sumarins hinn 31. ágúst. Flogið er frá Keflavík kl. 17:50 og lent í Köln klukkan 21:20, þaðan sem flogið er til baka til Keflavíkur kl. 00:30 þar sem lent er kl. 02:25.
MBL.IS
Iceland Express mun hefja áætlunarflug til Köln í vesturhluta Þýskalands í júní. Flogið verður tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum.
Iceland Express er annað stærsta fyrirtækið í ferðaþjónustu á Íslandi og á síðasta ári flutti félagið 21 prósent fleiri farþega en á árinu 2010. Góð aukning hefur verið á farþegum í vetur og bókanir fyrir sumarið benda til þess að enn eitt metið verði slegið í farþegaflutningum á þessu ári, enda er almennt reiknað með að ferðamönnum til landsins muni fjölga um allt að 18 prósent, samkvæmt tilkynningu.
Fyrsta flugið Iceland Express verður þriðjudaginn 5. júní og síðasta flug sumarsins hinn 31. ágúst. Flogið er frá Keflavík kl. 17:50 og lent í Köln klukkan 21:20, þaðan sem flogið er til baka til Keflavíkur kl. 00:30 þar sem lent er kl. 02:25.






