Tíðindi

Enginn flugfloti á innkaupalista Iceland Express

  08/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Aldrei stóð til af hálfu ferðasalans Iceland Express að kaupa sinn eigin flugflota eins og fréttir bárust af í byrjun nóvember síðastliðnum. Aldrei var þó gerð tilraun til að draga þær fréttir til baka á sínum tíma.

Í fjölmiðlum þann 3. nóvember birtust fregnir þess efnis að stjórn Iceland Express hefði ákveðið að kaupa sinn eigin flugflota og verða félaginu út um sitt eigið flugrekstrarleyfi.

Var þetta tveimur vikum áður en flugfélagið Astreus, sem sá um flug Iceland Express, hætti starfsemi og um svipað leyti og fregnir bárust af stofnun nýs íslensks flugfélags, Wow Air.

Síðan hefur Iceland Express gert samning við tékkneska félagið CSA Holidays um allt flug og nýverið var sá samningur endurnýjaður enda aðilar allir sáttir við gang mála.

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, segir við Fararheill að fréttirnar í vetur um kaup á þotum til félagsins hafa verið misskilning. Slíkt hafi aldrei staðið til þó í skoðun sé að félagið verði sér úti um eigið flugrekstrarleyfi.

Aldrei var þó gerð tilraun til að leiðrétta þennan misskilning blaðamanna en málinu var meðal annars slegið upp á forsíðu Fréttablaðsins á sínum tíma.