Ákveðnir ferðamenn hafa alltaf lagt leið sína að Hilton Beverly Hills hótelinu í Hollywood. Flestir ef ekki allir til að gista meðan borgin er skoðuð og lífsins notið. En nú er hótelið sjálft orðið að aðdráttarafli fyrir alla hina sem ekki hafa efni eða vilja til að gista.
Hér lést nefninlega Whitney Houston í síðasta mánuði og það trekkir.
Aldrei hefur verið meira að gera hjá ferðaþjónustufyrirtækinu Dearly Departed Tour í Los Angeles í Bandaríkjunum en ferðir þess fyrirtækis snúast eingöngu um að flytja ferðamenn frá einum dánarstað til annars með þeim formerkjum þó að alltaf er það frægt fólk sem látist hefur á umræddum stöðum.
Og það tók sólarhring að setja Whitney Houston og Hilton Beverly hótelið á rúntlistann og aðsóknin er mikil.
Slík ferðamennsku virðist færast í aukanna vestanhafs. Deilur standa yfir í Milwaukee fylki vegna ferðaþjónustufyrirtækis sem býður svokallaðan Dauðarúnt um þau svæði sem fjöldamorðinginn Jeffrey Damer myrti mann og annan á sínum tíma. Þar eins og í Hollywood er enginn skortur á viðskiptavinum.






