Tíðindi

Falda perlan vel falin hjá Plúsferðum

  06/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Hætt er við að einhverjir viðskiptavinir ferðaskrifstofunnar Plúsferða sem langar til Almeríu á Spáni í sumar rífi hár sitt og skegg ætli þeir sér að panta þar ferð.

Svo vill nefninlega til að „falda perlan“ sem ferðaskrifstofan kallar Almeríu finnst alls ekki í bókunarvél Plúsferða.

Það er sannarlega vel falin perla því ekki vantar útlistun á dásemdum Almeríu, eða öllu frekar Roquetas de Mar skammt frá borginni Almeríu, á vef ferðaskrifstofunnar. Þangað hafa Plúsferðir boðið ferðir áður og mælst ágætlega fyrir.

Á vef ferðaskrifstofunnar stendur meðal annars að þar sé aðgengi allt mjög gott og sérstaklega skemmtilegt sé að fylgjast með„hvernig líf ferðamannsins og hins almenna borgara fléttast saman“ eins og þar stendur.

Í öllu falli eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef Plúsferða er Almería alls ekki í boði í bókunarvélinni.

Áhugasamir verða að hringja eða gera sér ferð niður í Lágmúlann til að komast. Eingöngu er hægt að bóka ferðir til Tenerife, Alicante, Kanaríeyja og Veróna á Ítalíu.