Tíðindi

Wow Air sprengir áætlanir

  01/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Sala ferða hins nýja íslenska flugfélags Wow Air gengur vonum framar og eru nú þegar allar áætlanir forsvarsmanna þess sprungnar að sögn framkvæmdastjóra félagsins.

Rúmir tveir mánuðir eru nú síðan Wow Air hóf sölu ferða á netinu en flugfélagið býður upp á tólf áfangastaði í beinu flugi frá og með 1. júní næstkomandi. Margir þeirra áfangastaða eru í beinni samkeppni við Icelandair og Iceland Express en forsvarsmenn Wow hafa gengið út frá því að pláss sé fyrir fleiri á markaðnum og það virðist hafa verið raunin.

„Án þess að ég vilji fara út í smáatriðin þá hefur sala ferða gengið vonum framar og við erum þegar búnir að sprengja þær áætlanir sem við gerðum upprunalega,“ segir Baldur Oddur Baldursson, framkvæmdastjóri við Fararheill. „Það er því ekki hægt að vera annað en ánægður með slíkar viðtökur.“

Aðspurður út í áhuga Íslendinga sérstaklega segir Baldur að einnig þar hafi sala komið á óvart. Hún sé bæði meiri og mun fyrr á ferðinni en þeir hafi búist við. „Við áttum von á að Íslendingar yrði seinna á ferðinni en raunin er og auðvitað er aðalsölutíminn framundan þegar nær dregur sumri. En bókanir hingað til hafa verið fyrr og fleiri en við gerðum ráð fyrir.“

Þó sala og áhugi sé umfram væntingar vilja forsvarsmenn þó stíga varlega til jarðar. Baldur segir ekki ráðgert að auka við úrval ferða né fjölda frá því sem lagt var upp með í upphafi. „Við viljum gera þetta vel og því förum við hægt af stað en auðvitað hefur komið til tals að bæta ferðaúrvalið. Það er hins vegar eitthvað sem bíður betri tíma og jafnvel eitthvað sem við skoðum þá fyrir næsta vetur ef allt gengur að óskum í sumar.“

Wow Air mun bjóða ferðir til Alicante, Kaupmannahafnar, Basel, Stuttgart, London, Varsjár, Berlínar, Kraká, Kölnar, Parísar, Lyon og Zurich.

Heimasíða Wow Air hér.