Tíðindi

Besta hótel heims 2012 í Belís

  20/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Milljónir ferðamanna geta ekki haft rangt fyrir sér eða hvað? Að þeirra dómi er besta hótel heims að finna í Mið-Ameríkuríkinu Belís. Ekki nóg með að það smáríki státi af besta hótelinu að mati viðskiptavina heldur eru tvö hótel í landinu á topp tíu lista Tripadvisor fyrir árið 2012.

Birti ferðamiðillinn Tripadvisor í dag niðurstöður sínar um heimsins besta hótel.

Það velja ferðamenn sjálfir en eins og kunnugir vita byggist Tripadvisor á að allir sem vilja geta þar gefið hótelum einkunn eftir eigin reynslu. Sökum þess að þátttakendur í heildina skipta milljónum er því mun meira að marka stjörnugjöf þess miðils en annarra sem gera út á sama markað.

Efst á listanum og fær toppdóma er Phoenix Resort í San Pedro í Belís og í þriðja sætinu er einnig hótel í Belís; Hamanasi Adventure & Dive Resort.

Tvö hótel í Marokkó og Írlandi komast á topp tíu en hin eru í Grikklandi, Perú, Tékklandi og í Suður Afríku.