Þá vitum við nokkurn veginn hvað gróðinn getur verið feitur í skemmtiferðaskipabransanum!
Forráðamenn skipafélagsins Carnival Cruises sem á og rekur fjölda skemmtiferðaskipa og meðal annars hið sokkna Costa Concordia hafa lýst yfir að tekjureikningur félagsins á árinu muni lækka um 95 milljónir dollara þar sem ljóst sé að Concordia verði ekki sjófær að nýju fyrr en á næsta ári.
Samkvæmt gengi krónunnar þessa stundina þýðir það að tekjur félagsins lækki um tæpa tólf milljarða króna vegna þessa eina skips. Það er dágóður slatti af krónum og gefur vísbendingar um hvers konar peningar eru í skiparekstri.
Sérstaklega er upphæðin stór með tilliti til að Costa Concordia er langt í frá eitt af þeim skipum félagsins sem hvað dýrast er að ferðast með. Þá eru tekjur skemmtiferðaskipa í Evrópu töluvert lægri en tekjur skipa sem sveima um Karabíahafið.
Tekjurnar eru því það miklar að það tekur Carnival Cruises aðeins fjögur ár að fá upp í 392 milljóna dollara kostnað vegna byggingar skipsins.
Þegar eru björgunaraðilar komnir til eyjunnar Giglo þar sem skipið strandaði á föstudaginn var. Tala látinna er um sex talsins en 29 einstaklingar eru ófundnir enn.






