Tíðindi

Hvað er í gangi hjá Icelandair?

  08/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Vegir Guðs eru sagðir órannsakanlegir og það má líka segja um fargjöldin hjá Icelandair. Á heilum tíu mínútum gjörbreyttist fargjaldatafla flugfélagsins.

Aðili úr ritstjórn Fararheill.is íhugar för til Noregs í byrjun febrúar og fór af því tilefni inn á vef Icelandair klukkan 14:21 sunnudaginn 8. janúar 2011.

Ódýrustu fargjöld flugfélagsins eru jafnan merkt grænum lit og vakti athygli að í þetta sinn voru dýrustu fargjöldin einnig merkt með grænu (sjá mynd 1).

Ódýrasta fargjaldið aðra leiðina 18.730 krónur en allra dýrasta fargjaldið, 64.130, þann 8. febrúar var líka merkt grænum lit.

Þegar sama leit var framkvæmd tíu mínútum síðar, kl. 14:32, höfðu fargjöldin breyst allverulega (sjá mynd 2) og dýru sætin í fyrri leitinni horfin. Vitaskuld jákvætt fyrir viðskiptavininn að finna fargjald þann 8. febrúar rúmlega 45 þúsund krónum ódýrara en spurningin vaknar hvort þetta gildi ekki líka á hinn veginn?

Það er jú svo að fargjöld hækka jafnt og þétt hjá Icelandair eftir eftirspurn og sölu og eftir því sem nær dregur brottfarardegi en hvað veldur því að fargjöld lækka sísona er stór spurning. Ekki aðeins varð mikil lækkun þann 8. febrúar heldur og breyttust verð þann 5.,6. og 7. líka eins og sjá má. Þá var og allt í einu í boði far þann 9. febrúar sem ekki fannst við fyrri leit.

Er því full ástæða fyrir fólk sem skoðar ferðir fram í tímann að ítreka leit sína miðað við þetta. Ritstjórn getur ekki annað en hugsað til þess einstaklings sem klukkan 14:15 keypti far aðra leið til Osló á 64.130 krónur. Ætli nokkur hafi látið þann einstakling vita að nokkrum mínútum síðar kostaði sama far 18.730 krónur.