Tíðindi

Tíu vinsælustu borgirnar hjá Íslendingum

  03/01/2012desember 23rd, 2013No Comments

Kaupmannahöfn er langvinsælust allra borga meðal Íslendinga sé mið tekið af þeim tugþúsundum sem finna flug til og frá landinu gegnum leitarvefinn Dohop.is.

Birti Dohop, sem er alíslenskur vefur og staðið sig vel í samkeppni við erlenda ferðaleitarvefi, topp tíu lista sinn yfir þá staði sem flestir Íslendingar leituðu eftir flugi til á síðasta ári.

Er sá listi öllu réttari en sambærilegir listar flugfélaganna íslensku enda valið hjá Dohop ekki einskorðað við þá áætlunarstaði sem flugfélögin fljúga til.

Vekur enda strax athygli að í þriðja sætinu skuli vera borg sem alls ekki er í boði í beinu flugi frá Íslandi. Er það Bangkok í Tælandi sem ýtir auðveldlega borgum á borð við New York og Boston aftur fyrir sig.

Ekki síður er athyglisvert að Kanaríeyjar, sem er sá sólaráfangastaður sem ferðaskrifstofurnar íslensku bjóða flestar í beinu flugi héðan kemst ekki á lista yfir tíu vinsælustu staðina.

Listinn í heild sinni er svo:

  1. Kaupmannahöfn
  2. London
  3. Bangkok
  4. New York
  5. Alicante
  6. Orlando
  7. Oslo
  8. Boston
  9. Berlín
  10. París