Forsvarsmenn ferðaskrifstofunnar GB Ferðir hafa nokkuð að athuga við fregn Fararheill frá fimmtudeginum í síðustu viku en þar bar ritstjórn saman verðlagningu á borgarferð ferðaskrifstofunnar til Frankfurt og kostnaði á sams konar ferð gegnum netið.
Bent er á í athugasemd ferðaskrifstofunnar að í greininni þar sem fram kemur mikill verðmunur sé í raun verið að bera saman epli og appelsínur.
Bent er á að í samanburðinum er ekki tekið tillit til að GB Ferðir eru að selja ferðir sínar í Economy Flex farrými til og frá landinu meðan Fararheill notaðist við Economy, eða ódýrasta klassa. Economy Flex þýðir meira sætisrými og meiri þjónustu hjá Icelandair og ýmsar breytingar eru leyfðar. Það fargjald er því dýrara.
Á hinn bóginn tók samanburður Fararheill ekki mið af því að morgunverður er innifalinn í uppgefnu verði GB Ferða en engu slíku var fyrir að fara hjá Fararheill.is. Morgunverður fyrir umrædda þrjá daga kostar 36.900 krónur. Að síðustu gerir ferðaskrifstofan athugasemdir við að Fararheill notast við bankagengi en ekki vísagengi við útreikninga sína.
Þannig séu GB Ferðir í raun að bjóða mun ódýrari ferðir en gengur og gerist og ferðirnar til Frankfurt þannig 58.530 krónum ódýrari en hefðbundið gjald.
Athugasemdir GB Ferða eru góðra gjalda verðar og réttar að því marki að miðað við uppgefin verð er ferðaskrifstofan vissulega að bjóða mun betri díl en ella.
En ritstjórn Fararheill bendir á að hart er í ári hjá fjölmörgum fjölskyldum og velflestum er í nöp við að greiða meira en þarf fyrir flug og gistingu á ferðalögum enda það tvennt aðeins tæki sem til þarf til að njóta lífsins erlendis sem er jú höfuðmarkmiðið hjá flestum.
Eingöngu var verið að benda á að hægt er að njóta þess sama, að frátöldum fokdýrum morgunverði, fyrir töluvert lægra verð en auglýst er. Sætisrými í lægsta klassa í vélum Icelandair er sæmilegt og enginn ætti að fá blóðtappa af því að sitja í slíkum sætum þær þrjár klukkustundir sem það tekur að fara á milli. Fyrir mismuninn á því sæti og aftur hærri klassa má versla töluvert af samlokum, gosi eða áfengi sem fæst frítt í dýrari klassanum.
Hvað varðar morgunverðinn er sú athugasemd hárrétt en Fararheill bendir á að Jumeirah hótelið er vel staðsett í Frankfurt og allnokkur kaffihús- og veitingastaðir í grenndinni bjóða morgunverð á öllu eðlilegra verði en 12.300 krónur sem hann kostar á dag á hótelinu.
Tvær hliðar eru á öllum málum og í þessu tilviki hafa báðir aðilar rétt fyrir sér þó nálgunin sé frábrugðin. Hér er því verið að bera saman epli og epli að mati ritstjórnar.
Hér er hægt að kynna sér borgina Frankfurt í þaula.






