Tíðindi

Byggja stærstu ískirkju heims

  23/11/2011janúar 13th, 2014No Comments

Þær voru ekki lítið grand hugmyndir Icelandair um byggingu risavaxinnar timburkirkju í Skálholti til að laða að fleiri ferðamenn. Sömu hugmynd hafa bæjarbúar í skíðabænum Mitterfirmiansreut í bæversku fjöllunum í Þýskalandi. Nema hvað kirkja þeirra þýsku er alfarið úr ís.

Er bygging stærstu ískirkju heims hafin á þeim bænum en Mitterfirmiansreut er dúllulegur skíðabær nálægt landamærunum við Tékkland. Skal kirkjan sú vera komin upp þann 17. desember næstkomandi og kannski eins gott því þegar eru bókaðar skírnir og giftingar strax um jólin.

Að sögn þýska blaðsins Spiegel sem segir frá þessu ævintýri bæjarbúa er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Ískirkjan skal vera 26 metra löng og turn hennar 17 metrar á hæðina og til verksins þarf 14 þúsund kúbikmetra af snjó. Verra er að lítið bólar á snjónum sem til þarf.

En sennilega er það merkilegasta við verkefnið að bæjarbúar eru ekki að dúlla sér við þetta af tómu gamni. Er þetta virðingarvottur við forfeður bæjarbúa sem nefninlega reistu sams konar ískirkju af sömu stærð fyrir réttum hundrað árum síðan.

Ástæðan sú að á þeim árum var langt að sækja messur í einu kirkju svæðisins og fóru því íbúar margra smábæja fram á að fá leyfi til að byggja sínar eigin. Var því neitað og í mótmælaskyni byggðu þeir saman eitt stykki stórfenglega ískirkju.