Þó sagt sé að sælla sé að gefa en þiggja er ekkert gefið við að reyna að komast heim til Íslands í frí um jólin fyrir þær þúsundir íslenskra námsmanna sem það kynnu að kjósa. Úttekt Fararheill leiðir í ljós að heim verður varla komist undir 65 þúsund krónum og getur kostnaðurinn farið yfir hundrað þúsund krónur sé miði keyptur nú.
Það er grimmur biti fyrir námsmenn sem glíma ekki aðeins við veika krónu gagnvart helstu gjaldmiðlum heldur og dýrari fargjöld hjá flugfélögunum en verið hefur.
Frá Köben
Langi fólk heim í faðm fjölskyldunnar um jólin frá Kaupmannahöfn finnur Fararheill.is ódýrast fargjald hjá Icelandair á 47.659 krónur en sá galli er á að þá er flogið heim þann 14. desember og út aftur á Gamlársdag. Ekki aðeins er leiðinlegt fyrir flesta að yfirgefa klakann á Gamlársdag heldur er 14. helst til snemmt fyrir marga sem eru í prófum lengur en það.
Sé þetta ekki í boði kemst fólk ódýrast heim og til baka eftir áramótin með Iceland Express á 64.289 krónur og er þá flogið heim 17. desember og út aftur 5. janúar. Hjá Icelandair býðst að koma heim 16. desember og út aftur 4. janúar fyrir 70.059 krónur. Vekur og athygli að fargjaldið heim og út getur farið í tæpar 110 þúsund krónur ef nauðsynlegt reynist að koma heim 22. desember og út aftur 3. janúar.
Frá London
Aðeins billegra er að komast heim frá London. Með Iceland Express fást nú ferðir heim 19. og út aftur 5. janúar fyrir 56.987 krónur. Með Icelandair er ódýrast komist frá London þann 20. desember og heim aftur 6. janúar fyrir 69.553 krónur. Reyndar má lækka þetta fargjald um tíu þúsund krónur geti fólk beðið alveg til 10. janúar með brottför út.
* Miðað við fargjald fyrir einn á almennu farrými og uppgefin fargjöld á vefum flugfélaganna þann 17. nóvember 2011. Aðeins um beinan verðsamanburð að ræða.






