Tíðindi

Himinlifandi hjá easyJet

  17/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Forsprakkar breska flugfélagsins easyJet eru himinlifandi með þær viðtökur sem ný flugleið þeirra til Íslands hefur fengið. Gengur sala flugmiða afar vel og aðeins viku eftir að félagið hóf að selja sæti eru þegar tíu prósent sæta uppseld.

Af þessum fjölda er um helmingurinn Íslendingar sem kaupa far frá Íslandi að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Er flugleiðin til Íslands strax orðin ein sú vinsælasta hjá flugfélaginu sem segir ekki lítið því easyJet flýgur til 30 landa

Ekki kemur fram í tilkynningunni hvort flugfélagið hyggist fjölga ferðum en aðeins eru ráðgerðar þrjár ferðir í viku hverri frá mars til september.

Í öllu falli má ljóst vera að Íslendingar eru að taka félaginu fagnandi og ráðlegt að verða sér úti um miða fyrr en síðar því ef fram heldur sem horfir verður orðið uppselt í allar ferðir félagsins töluvert áður en jómfrúarflugið fer í loftið.

Heimasíða easyJet hér.