Það er alltaf skemmtilegt þegar vafi leikur á hvort frétt í útbreiddum fjölmiðli er raunveruleg frétt eða keypt. Eða ekki.
Vakti athygli ritstjórnar Fararheill.is fregn Vísis um nýjan samning leitarvélafyrirtækisins Dohop við ítalskan flugvöll. En hvað eiga menn að halda þegar birt er næsta óbreytt fréttatilkynning frá Dohop við hlið skjáauglýsingar frá Dohop á vef Vísis? Ritstjórn spyr sig.
Líklegra er þó að um hreina en óheppilega tilviljun sé að ræða. Eitt reyndar er þó frétt í fréttinni. Þar kemur fram að Dohop bjóði upp á flugleit sem finni bílalegur. Sem er klárlega nýjung 🙂






