Hvernig stendur á því að allra lægstu fargjöld breska lágfargjaldaflugfélagsins easyJet eru 300 prósent ódýrari en ódýrustu fargjöld Icelandair og Iceland Express? Svarið er eldsneytisálag þeirra íslensku.
Ritstjórn Fararheill.is hefur fengið tvær fyrirspurnir þar sem velt er upp þeirri spurningu hvernig lágfargjaldaflugfélagið easyJet fari að því að bjóða fargjöld sem eru að lágmarki 300 prósent ódýrari en lægstu fargjöld þeirra íslensku aðila sem héðan bjóða flug til London næsta sumar.
Er þar miðað við allra ódýrustu fargjöld easyJet í sumar, 4.617 krónur, sem finnast eins og Fararheill benti á í ágúst og september og aftur á móti ódýrustu fargjöldin sem bjóðast farþegum Icelandair eða Iceland Express í sumar sem finnast ódýrast kringum átján til nítján þúsund krónur samkvæmt nettri úttekt.
Öll þrjú flugfélögin greiða nákvæmlega sömu flugvallargjöld hérlendis eða 3.380 krónur. Flugvallargjöld í London eru misjöfn. Iceland Express greiðir 4.597 krónur í gjöld í Gatwick, Icelandair greiðir 6.250 krónur í sömu gjöld á Heathrow en ekki liggur fyrir hvað easyJet greiðir í Luton. Luton er ekki aðeins aðalmiðstöð easyJet heldur og minnsti og lakasti flugvöllur þessara þriggja og líklega er flugvallargjald easyJet varla hærra en tvö til þrjú þúsund krónur.
Meginmunurinn á hefðbundnu fargjaldi easyJet annars vegar og hinna tveggja er að í fargjöldum Icelandair og Iceland Express er svokallað eldsneytisálag. Hjá Icelandair greiðir hver farþegi 15.600 krónur í það álag meðan talan fyrir Iceland Express er 13.800 krónur. Sést á töflu Alþjóðasamtaka flugfélaga, IATA, að verð á þotueldsneyti hefur hækkað töluvert síðasta árið og það kemur verst niður á minnstu flugfélögunum.
Ekkert slíkt aukagjald er innheimt sérstaklega hjá easyJet en jafnvel þó svo væri yrði það gjald mun lægra því flugfloti easyJet er margfalt stærri en hinna tveggja og þeir geta því fengið mun betri verð á magnkaupum á eldsneyti en þau íslensku.
En í þessu gjaldi liggur í raun munurinn á fargjöldum þessara þriggja flugfélaga sé mið tekið af uppgefnu verði á heimasíðum þeirra eins og sakir standa. Telja má þó líklegt að bæði Iceland Express og Icelandair muni lækka verð á stöku ferðum sínar þegar nær dregur. Þó er það ekki gefið því easyJet hyggur aðeins á þrjár ferðir til Íslands vikulega. Ekki er víst að það nægi til að hin tvö og önnur flugfélög sem hyggja á samkeppni lækki mikið fargjöld sín.






