Innan þriggja ára mun farþegum hins sameinaða bandaríska flugfélags United Continental bjóðast netaðgengi um borð í öllum vélum þess flugfélags.
Er þetta fyrsta stóra flugfélagið sem tilkynnir um slíkt en mörg flugfélög bjóða slíka þjónustu í dag en aðeins í takmörkuðum fjölda véla sinna. Meðal þeirra má nefna JetBlue, Virgin, British Airways, Norwegian og fleiri sem ekki hafa þó ákveðið að setja slíkt upp í öllum flugflotanum enda bæði flókið og dýrt enda aðgengi takmarkað á lengri flugleiðum yfir ballarhafi svo dæmi sé tekið.
United Continental hefur þó gert samning við Panasonic um uppsetningu þráðlauss nets í öllum vélum sínum hvort sem um er að ræða innanlands- eða millilandaflug.
Þó fátt sé kannski betra til fallið til að drepa langar stundir í þröngum sætum flugvéla en netráp býður ekkert þeirra flugfélaga sem hingað til lands fljúga enn upp á neitt slíkt. Heldur er ekki á döfinni að bjóða slíkt hjá Wow Air, Icelandair né Iceland Express á næstunni.
Er reyndar einn viðbótarhængur á slíku. Sætisbil margra flugfélaga er of lítið til að hægt sé að vinna eða leika sér á fartölvu af hefðbundinni stærð með góðu móti. Erfitt er að sjá að flugfélög, sérstaklega lágfargjaldaflugfélög, breikki sætisbil aðeins til að bjóða aukna þjónustu án þess að hækka gjöld sín.






