Tíðindi

London að stórtapa á Ólympíuleikunum?

  07/11/2011desember 6th, 2014No Comments

Útlit er fyrir að Ólympíuleikarnir í London verði ekki það aðdráttarafl sem borgaryfirvöld hugðu. Þvert á móti hefur algjört hrun átt sér stað í bókunum hefðbundinna ferðamanna til borgarinnar í júlí og ágúst.

Óhætt er að tala um algjört hrun því Samtök evrópskra ferðaþjónustuaðila, ETOA, segja 95 prósent færri bókanir hefðbundinna ferðamanna til London í júlí og ágúst en venja er. Ólympíuleikarnir hefjast þann 27. júlí og standa yfir til 12. ágúst.

Munar um minna því London er ein af vinsælustu áfangastöðum heims hjá ferðafólki og er ferðaþjónusta stór og mikilvægur atvinnuvegur í borginni.

Ekki er farið út í hvaða ástæður eru fyrir þessu hruni en að líkindum hafa margir þeirra sem til London koma takmarkaðan áhuga á Ólympíuleikunum auk þess sem verðlag í borginni, sem er hátt fyrir, hækkar enn meðan á leikunum stendur.

Getur því farið svo að Ólympíuleikarnir verði myllusteinn um háls borgaryfirvalda í London eins og raunin varð í Aþenu þegar leikarnir voru haldnir þar með pompi og prakt 2004. Varð gífurlegt tap á þeim leikum.