Icelandair býður nú næsta sólarhringinn ný hraðtilboð sín til Kaupmannahafnar, Amsterdam og Seattle. Hraðtilboðin eru þó ekki hraðari en svo að ekki verður hægt að nýta þessi tilboð fyrr en á næsta ári.
Hraðtilboðin eru sem fyrr aðeins í boði í 24 stundir eða til hádegis á morgun, 26. október, og eru gróflega milli 15 og 40 prósent ódýrari en hefðbundin lægstu fargjöld á viðkomandi leiðum.
Nú býðst ferð aðra leið til Kaupmannahafnar á 14.900 krónur eða 29.900 báðar leiðir. Til Amsterdam í Hollandi verður nú komist aðra leið fyrir 16.900 krónur eða 34.700 báðar leiðir og önnur leiðin til Seattle í Bandaríkjunum kostar 35.900 aðra leið og 66.800 báðar leiðir.
Sem fyrr er takmarkað hvenær hægt er að nýta tilboðin. Til Kaupmannahafnar er aðeins í boði að fljúga frá 9. janúar 2012 til 31. mars 2012. Til Amsterdam frá 10. janúar til 31. mars og til Seattle frá 7. janúar til 31. mars.
Heimasíða Icelandair hér.






