Í fyrsta skipti síðan 1944 er Pálskirkjan í London lokuð gestum. Það verður hún áfram.
Hefur hópur mótmælenda í ensku höfuðborginni komið sér fyrir á stétt fyrir framan þessa miklu kirkju sem er árlega einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna í borginni. Það telja kirkjunnar menn óásættanlegt og hafa því lokað dyrum hennar tímabundið meðan mótmælin ganga niður.
Fátt bendir þó til að slíkt gerist því samkvæmt fregnum breskra fjölmiðla fer þeim fjölgandi sem komið hafa sér fyrir en þar hafa rúmlega 500 manns verið í heila viku og mótmælt kjörum hinna lægra settu stétta í landinu.
Verða því ferðamenn allavega næstu dagana að gera sér að góðu að skoða þessa fornfrægu dómkirkju utanfrá en hér fór meðal annars fram eitt vinsælasta brúðkaup heims þegar Díana giftist Karli sínum Bretaprinsi á sínum tíma.






