Meðfylgjandi skjámynd af forsíðu vefs Viðskiptablaðsins er nokkuð merkileg með tilliti til þess sem gerðist hér á landi síðustu árin fyrir bankahrunið.
Þar eru tvær fréttir. Annars vegar af miklum uppgangi Icelandair en á sama tíma rifar stærsta flugfélag Norðurlanda enn frekar saman seglin og var þó búið að hagræða nokkuð áður.
Ekki þar fyrir að Icelandair virðist ganga vel og eðlilegt í viðskiptum að grípa tækifæri sem gefast en sporin hljóta að hræða. Nema SAS sé svona hræðilega illa rekið fyrirtæki.






