Tíðindi

Táfýla á útleið við öryggisleit

  08/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Innan tíðar munu farþegar í Leifsstöð ekki lengur þurfa að opinbera slitna sokka og táfýlu við öryggisleit eins og verið hefur heldur þeim heimilt að rölta í skónum gegnum öryggisleitina með snefil af virðingu.

Helgast þetta af því að eina ástæða þess að fólk þarf að fara úr skóm í Leifsstöð er vegna krafna Bandaríkjamanna um slíkt en þeir sjálfir eru að fara breyta reglum sínum hvað þetta varðar.

Þetta staðfesti Janet Napolitano, yfirmaður Heimavarnarstofnunar Bandaríkjanna, í viðtali við vefinn Politico fyrir skemmstu.

Er þar verið að yfirfara og breyta stífum reglum um öryggisleit á flugvöllum og eitt af því sem farþegar ættu að gleðjast yfir er að ekki lengur verður gerð sú krafa að fólk fari úr skónum.

Séu upplýsingar Fararheill.is frá Leifsstöð réttar að krafan um að fara úr skóm sé tilkomin vegna krafna Bandaríkjamanna er ljóst að sama verður uppi á teningnum hér. Ber að fagna slíkum tíðindum enda ólíkt verra andrúmsloft kringum öryggissvæðið en annars staðar í byggingunni.