Tíðindi

Machu Picchu í einkaeigu?

  08/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Verið getur að einhver stórkostlegustu mannvirki heims sem hundruð þúsunda heimsækja árlega og eyða til þess hundruðum milljóna séu í einkaeign.

Það er allavega grundvöllur málaferla sem eru komin alla leið til Sameinuðu þjóðanna en tveir bændur frá Perú vilja meina að Inkaborgin mikilfenglega Machu Picchu og allt land í kring tilheyri þeim og hafi gert í áraraðir.

Eru deilurnar ekki nýjar af nálinni en bændurnir hafa barist fyrir rétti sínum um sextán ára skeið án þess að stjórnvöld í Perú hafi nokkuð aðhafst.

Er það þess vegna sem lögmaður bændanna er kominn með málið fyrir þá deild Sameinuðu þjóðanna er fer fyrir Heimsminjaskrá en Inkaborgin er fyrir löngu komin á þá skrá.

Áttu fjölskyldur bændanna tveggja landið sem borgin forna stendur á og gott betur áður en yfirvöld ákváðu að taka landið eignarnámi árið 1944 en aldrei var það gert með formlegum hætti og því telja bændurnar sig eiga landið ennþá.

Er um mikla hagsmuni að ræða því Machu Picchu er vinsælasti áfangastaður ferðamanna í Perú allri og reyndar í Suður Ameríku allri. Verði fallist á kröfur bændanna verða þeir vellauðugir á einni nóttu.

Rétt eitt hundrað ár er síðan Machu Picchu fannst eftir að hafa fallið í gleymsku og fara nú fram mikil hátíðarhöld í Cuzco Í Perú til að minnast þeirra tímamóta.