Þó hlýnandi veðurfar á norðurhveli jarðar sé fagnaðarefni fyrir alla þá er taka milt og gott veður framyfir þann skítakulda sem ríkjum ræður á þessum slóðum meirihluta ársins er ekki tóm hamingju þessu samfara. Moskítóflugur eru farnar að gera vart við sig í suðurhluta Englands.
Ekki er um stórvægilegt vandamál að ræða samkvæmt BBC sem um málið fjallar enda skráð tilfelli bita aðeins um tíu þúsund það sem af er árs. Verra er að það er helmingsfjölgun frá sumrinu 2010.
Er suðurhluti Englands að heita allur kjörlendi fyrir fluguna enda vorin og haustin orðin mikið mildari nú en áður fyrr. Þá hjálpar og töluvert rignir í Englandi og fátt elska moskítóflugur meira en polla og mýrar sem víðast. Betri útungunarstöðvar er ekki að finna svo lengi sem hitastig helst bærilegt.
Það er því ekki lengur brandari að pakka moskítóspreyi með í töskuna þó ferðinni sé aðeins heitið til Englands því fátt er leiðinlegra að vakna upp við en bit þessara leiðindaflugna. Þær ensku valda þó ekki sama skaða og annars staðar þar sem malaríusmit berst gjarnan milli fólks með þessum flugum. Ekki hafa fundist nein dæmi um slíkt í Englandi.








