Tugir farþega ferðasalans Iceland Express þurftu að gera sér að góðu að dvelja nóttina í flugstöðinni í Alicante á Spáni eftir að bilun kom upp í vél þeirri er ferja átti fólkið heim seint í gærkvöldi. Fékk fólkið eina samloku og gosflösku eftir fimm klukkustunda bið en hvorki kodda né teppi.
Tókst aðeins að finna hluta farþeganna gistingu en samkvæmt áætlun átti fólkið að fljúga heim klukkan 23:10 í gærkvöldi. Sökum bilunar í hreyfli þótti ekki ráðlegt annað en fresta brottför og er gert ráð fyrir að fólkið komist heim seinnipartinn í dag.
Í tilkynningu frá Iceland Express segir að erfitt hafi verið að finna öllum næturgistingu enda háannatími í ferðaþjónustunni. Allmargir hafi farið til sinna eigin íbúða aftur en sem kunnugt er eiga fjölmargir Íslendingar fasteignar í Alicante.
Enn einu sinni virðist ferðasalinn ekki eiga aukavél til brúks við slíkar aðstæður sem er þó regla fremur en undantekning hjá flestum öðrum flugfélögum.






