Þetta er svona svipað og að pylsugerðarmaður hlaupi fúll í fjölmiðla vegna þess að hann fær ekki að kynna vörur sínar á grænmetishátíð.

Umdeild mjög. Hátíðin Palio di Siena þykir ekki lengur móðins hjá stjórnvöldum. Mynd Janus Kinase
Með þeim orðum afgreiddi menningarmálaráðherra Ítalíu kvartanir þeirra fjölmörgu mótshaldara hvers hátíðir verða ekki lengur kynntar á opinberum ferðavef Ítalíu en þeim vef hefur verið breytt mikið og þar fjarlægðar margar af elstu og þekktustu hátíðum landsins. Ástæðan er að þær þykja ýmsar of umdeildar og þá fyrst og fremst fyrir meðferð á dýrum.
Dæmi um það er hin geysivinsælu og fjölsóttu kappreiðar Palio di Siena í Siena. Sú hátíð finnst ekki lengur á opinberum vef yfirvalda um merkar hátíðir sem teljast til menningararfs Ítalíu og breytir þá engu að fyrstu kappreiðarnar undir þessu nafni fóru fram árið 1656.
Ýmsar merkar hátíðir, margar þekktar langt út fyrir Ítalíu, hafa verið fjarlægðar af lista ferðamálayfirvalda á Ítalíu sökum grimmdar gegn dýrum.
Sú frægasta þeirra vafalítið Palio di Siena en sú hefur um árabil dregið að tugþúsundir ferðamanna og þykir mikilvæg tekjulind borgarinnar. Þar keppt í útreiðum á hinu sögufræga torgi Piazza del Campo tvívegis á ári á níðþröngu torginu með þeim afleiðingum að bæði hestar og menn slasa sig nánast undantekningarlítið.
Fyrir vikið er vaxandi andstaða við Palio di Siena af hálfu dýraverndunarsinna og þá gagnrýni hafa ítölsk stjórnvöld nú tekið til sín. Hátíðin er ekki ein af þeim 34 sem sérstaklega er mælt með opinberlega og kynntar sérstaklega af hálfu ferðamálayfirvalda.







