Tíðindi

Ferðafólk forðast enn Egyptaland

  27/07/2011desember 5th, 2014No Comments

Hálft ár er nú liðið síðan fór að bera á óeirðum í Egyptalandi vegna harðræðis stjórnvalda. Strax um það leyti fóru ferðaskrifstofur að afbóka þangað ferðir og þrátt fyrir að töluvert sé um liðið síðan mesta alda mótmæla leið hjá bólar lítið á erlendum ferðamönnum.

Hluta skýringarinnar á því má fullvíst telja að enn eru víða mótmæli í landinu þó lítið fari fyrir slíku í fjölmiðlum heimsins.

Segja ferðamálayfirvöld í landinu stöðuna grafalvarlega því fjöldi ferðamanna til landsins í ár er aðeins fjórðungur af því sem var árið 2010 þegar allt var með kyrrum kjörum á yfirborðinu. Ferðaþjónustan er afar mikilvæg tekjulind fyrir ríkið og munar um minna þegar svo hrapallegt er fallið.

Svo undarlegt sem það nú er þá hefur ekki orðið neitt gríðarlegt verðfall á ferðum þeirra evrópsku ferðaskrifstofa sem bjóða þangað skipulagðar ferðir samkvæmt lauslegri úttekt Fararheill.

Virðist því ekki einu sinni hægt að freista ferðamanna með góðum tilboðum þó ferðamannaiðnaðurinn sé í rjúkandi rúst.