Tíðindi

Dýrasta borg heims í Afríku

  19/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Reglulega birtast hérlendis í fjölmiðlum árlegar kannanir um dýrustu borgir heims. Stutt er síðan ein slík sýndi að Tókíó í Japan er sú allra dýrasta. Nema hvað hún er það ekki.

Sá heiður, ef heiður skyldi kalla, tilheyrir í raun Lúanda höfuðborg Angóla í Afríku en þar kostar vörukarfa  200 mismunandi vörutegunda nokkuð meira en í Tókíó sem kemur í öðru sætinu.

Er þetta niðurstaða árlegrar úttektar ráðgjafafyrirtækisins Mercer en sú úttekt er mun umfangsmeiri en sambærilegar úttektir aðrar og er því í raun réttari.

Hvað veldur því að Lúanda í Angóla er í fyrsta sætinu og reyndar önnur afrísk borg, N´Djamena í Chad, í þriðja sætinu má rekja til gjörspilltra stjórnvalda sem luma á ótöldum milljörðum tunna af olíu innan landamæra sinna. Þá er allur innfrastrúktúr af skornum skammti og hótel og veitingastaðir því sem næst teljandi á fingrum annarrar handar. Fyrirtækin geta því sett upp nánast þau verð sem þau kæra sig um og gera það þegar fölbleikir erlendir ferðamenn eiga leið um.