Tíðindi

Banna börn á fyrsta farrými

  28/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Forráðamenn flugfélagsins Malaysia Airlines hafa ákveðið að banna einnig alfarið börn á fyrsta farrými í öllum nýjum þotum Airbus A380 þotum sínum en sams konar bann hefur verið í gildi hjá flugfélaginu um nokkurt skeið.

Var tilkynnt um þetta í dag en Malaysia Airlines mun hefja flug milli Asíu, Eyjaálfu og Evrópu í risaþotunum A380 á næsta ári. Sú vél er stærsta farþegavél heims og fyrsta farrými þar öllu vistlegra en hefðbundin farrými í þotum flugfélaga.

Hefur sams konar bann verið við lýði hjá félaginu lengi í eldri vélum félagsins en með slíku banni vill flugfélagið tryggja þeim er best borga fyrir miða sína frið og ró alla flugferðina. Verður enda enn dýrara að fljúga á fyrsta farrými í risaþotunum en þeim hefðbundu.

Malaysia Airlines er þó enn sem komið er eina flugfélagið sem þetta gerir þó töluverður þrýstingur sé almennt á mörg flugfélög að meina börnum aðgang að fyrsta farrými sem einnig er kallað viðskiptafarrými eða lúxusfarrými.

Hefur komið fram í fjölmiðlum að meðal flugfélaga sem íhugað hafa slíkar hugmyndir eru Virgin Atlantic, British Airways og Emirates.