Tíðindi

Meiri bjór úr tollinum

  02/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Bjórunnendur til sjávar og sveita ættu að taka gleði sína því nú er mönnum heimilt að koma með meira magn bjórs inn í landið en tíðkast hefur fyrr.

Breyttust tollareglur í lok júní á þann veg að aukið var við það magn bjórs sem koma má með tollfrjálst úr ferðalögum. Er nú heimilt að koma með heila tólf lítra af bjór sé aðeins keyptur sá mjöður en ekki annað létt- eða sterkt vín.

Engar aðrar breytingar voru gerðar á tollalögunum að þessu sinni og eru áfram sömu takmörk á innflutningi á vínum og vindlingum og áður var.

Samkvæmt reglunum nýju er nú heimilt að taka með sér eftirfarandi:

  • 1 lítra af sterku áfengi /1 lítra af léttvíni /6 lítra af bjór.
  • 3 lítra af léttvíni /6 lítra af bjór.
  • 1 lítra af sterku áfengi / 9 lítra af bjór.
  • 1,5 lítra af léttvíni / 9 lítra af bjór.
  • 12 lítra af bjór.