Hann var athyglisverður uppsláttur Fréttablaðsins á gríðarmiklum töfum og seinkunum flugfélags Iceland Express. Ekkert kom þar fram sem Fararheill.is hefur ekki fjallað um ítrekað í um hálfs árs skeið en ekki síður eru athyglisverð viðbrögð Talsmanns neytenda sem vill gera tölfræði um slíkar tafir opinberar.
Hinn ágæti talsmaður vill auka eftirlit ríkisins til að slíkum upplýsingum sé komið til ferðamanna en sá ágæti maður þyrfti annars lagið að lesa Fararheill til að fá þær upplýsingar beint í æð. Það er fylgst með slíku af netmiðlum og er miðilinn Flightstats þar fremstur meðal jafningja.
Þá gerir Fararheill ennfremur sínar eigin úttektir annars lagið og síðast í fyrradag þegar ekki ein einasta véla Iceland Express var á tíma.
Frétt Fréttablaðsins fjallaði um að 36,4 prósent áætlunarfluga Iceland Express síðasta sumar hefðu verið á áætlun. Það eru gamlar fréttir og nýtast engum. Hins vegar birti Fararheill í byrjun þessa mánaðar tölfræðina fyrir flugfélagið síðustu tvo mánuði og sést þar að stundvísin fer batnandi þó langt sé í frá að hún sé góð.
Hinn ágæti Talsmaður ætti fremur að einbeita sér að því að finna út hvers vegna eldsneytisgjald flugfélaganna er ekki hið sama og hvers vegna ferðaskrifstofur hérlendis geti auglýst ferðir sínar miðað við fjögurra manna vísitölufjölskyldu þegar það hentar og svo fyrir einn eða tvo þegar það sýnir betri tölur.






