Tíðindi

Oasis valið besta skemmtiferðaskipið

  20/06/2011ágúst 29th, 2021No Comments

Hið mikilfenglega risaskip Oasis of the Seas er besta farþegaskip heims samkvæmt áliti 700 þúsund þátttakenda í könnun Cruiser´s Choice. Tók skipafélag þess, Royal Caribbean og skipafélagið Celebrity Cruises flest verðlaun alls.

Oasis of the Seas er eins og flestum er kunnugt stærsta farþegaskip heims ásamt systurskipi sínu Allure of the Seas en þau taka alls sex þúsund farþega hvort um sig.

Var könnun Cruiser´s Choice yfirgripsmikil og dekkaði fjölmörg mismunandi atriði en velflestir meðlima þess eyða ekki ferðalögum sínum öðruvísi en um borð í þeim lúxusskipum sem heimsins höf sigla.

Þá vekur og athygli að tvö skipafélög sérstaklega fá lágar einkunnir og tóku aðeins heim ein einustu verðlaun sem þó skiptu tugum í öllum flokkum. Voru það Disney Cruise Lines og Carnival.

Náði könnunin einnig til annarra en stærstu lúxusskipanna eins og sjá má á vef samtakanna.