Tíðindi

Tilboð sem bragð er að

  18/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Ritstjórn Fararheill.is hefur verið legið á hálsi, af hagsmunaaðilum, að vera ósanngjarnir og neikvæðir í umfjöllun um margar íslenskar ferðaskrifstofur. Ritstjórn vísar því til föðurhúsanna en vill jafnframt meina að verðlag flestra ferðaskrifstofanna sé almennt ósanngjarnt og neikvætt.

En við hlaupum líka til þegar á borð berast tilboð sem við getum á engan hátt jafnað og eitt slíkt er nú auglýst hjá ferðaskrifstofunni Trans Atlantic á Akureyri.

Eru þeir að bjóða djammferðir til Íbiza og er síðasta ferðin af þremur í byrjun júlí. Er það ekki ferð fyrir hjartveika því bæði á hótelinu og ekki síður á eynni er partí út í eitt nánast 365 daga á ári og auðvitað hvað mest yfir hásumartímann.

Eru ferðirnar í samstarfi við útvarpsstöðina Flass en um er að ræða tíu daga ferðir og kostnaður á mann 164.900 krónur miðað við gistingu á partíhótelinu Club Punta Arabí.

Ódýrasta tveggja manna herbergi í boði á vef þess hótels á sama tíma og síðasta ferð Trans Atlantic stendur yfir kostar 211.013 krónur samkvæmt gengi dagsins og er allt innifalið eins og í tilboði Trans-Atlantic. Ódýrustu flugferðir gegnum London fram og tilbaka, með Iceland Express og easyJet, til Ibíza finnast á samtals 74.248 krónur. Samtals kostar því 179.754 krónur að fara slíka ferð ódýrast á eigin spýtur.

Munar þar 14.854 krónum en að auki er Trans-Atlantic með íslenska fararstjóra og sérstaka skemmtidagskrá í gangi. Tilboð sem bragð er af ef djamm og djúserí er málið.