Tíðindi

Þrjú hraðtilboð Icelandair

  08/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Icelandair býður nú í einn sólarhring sérstök tilboð á ferðum til Boston, Billund og Berlínar en í boði eru ferðir til þessara áfangastað í ágúst.

Fæst þannig næsta sólarhringinn flug til Boston í Bandaríkjunum á 24.900 krónur aðra leiðina en fljúga verður milli 25. ágúst og 15. október.

Fargjald til Billund í Danmörku fæst á 14.900 krónur aðra leiðina en aðeins fyrir flug frá 10. ágúst til 10. september.

Berlín er í boði á 16.900 krónur á tilboði Icelandair að þessu sinni aðra leiðina svo lengi sem flogið er frá 2. ágúst til 8. september.

Innifalið er flug á almenningsfarrými og skattar.