Tíðindi

Barnlausar ferðir vinsælastar allra

  11/03/2009maí 11th, 2014No Comments

Það er vitlaust að gera hjá norskum ferðaskrifstofum sem skýtur skökku við enda efnahagslægðin náð þangað líka. Nema þegar grannt er skoðað er það ekki allar ferðir sem eru svo vinsælar heldur í raun aðeins ein tegund ferða; barnlausar.

Barnlausar ferðir norskra ferðaskrifstofa langt frá á næsta vetur eru að verða uppseldar með öllu og virðist vera að barnlaus hjón taki þeirri nýjung fagnandi að boðið sé upp á flug og hótel á Kanaríeyjum þar sem engin heyrist gráturinn eða köllin í krökkunum enda ekki í boði að taka börnin með.

Hefur þetta vakið óskipta athygli í nágrannalöndunum og hver veit nema þær íslensku taki upp á þessari nýjung einnig… eftir nokkur ár.