Fleiri þúsund kílómetrar af hinum stórkostlega 8.851 kílómetra langa Kínamúr liggja undir miklum skemmdum vegna ágangs ferðamanna, skemmdarfýsnar, mengunar og veðurs. Áætla fræðingar að einungis sé nú 547 kílómetra kafli af veggnum þar sem ekki er farið að kvarnast úr.

Hinn magnaði Kínamúr er að grotna niður á risastórum kafla. Mynd Jun Wei Fan

Hinn magnaði Kínamúr er að grotna niður á risastórum kafla. Mynd Jun Wei Fan

Hefur Global Heritage Fund miklar áhyggjur af ástandi þessa eins stórkostlegasta mannvirkis í mannkynssögunni en sú stofnun hefur eftirlitshlutverki að gegna við mikilvæga menningarstaði á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna.

Engum á að koma á óvart að þær rúmlega tíu milljónir ferðamanna sem koma og skoða Kínamúrinn árlega skilji eftir vegsummerki. Verra er að margir stela heilu steinunum úr veggnum til að taka sem minjagrip meðan enn aðrir krota nöfn sín og annað bull á steina múrsins. Sömuleiðis er hópur ferðafólks sem lítur á Kínamúrinn sem klósett og gerir þarfir sínar þar sem því verður komið við. Enn aðrir reisa tjöld sín á múrnum sjálfum.

Þetta er í viðbót við þær skemmdir sem veðurfar og mengun hefur haft en það hefur sérstaklega mikil áhrif á þann hluta múrsins sem byggður er úr leir, spýtum og mold en ekki grjóti. Það er æði langur kafli sem þannig var byggður og múrinn því ekki úr grjóti alla leiðina eins og margir halda. Jafnvel þeir hlutar múrsins þar sem grjót hefur verið notað liggja undir skemmdum vegna þess að fátækir íbúar í héruðum við múrinn stela steinum til að brúka í byggingar sínar.

Nýjasta vandamálið er svo drykkjuhátíðir sem ungir Kínverjar halda reglulega á eða við múrinn. Þótt skemmdir séu fátíðar við slík hátíðahöld er rusl verulegt vandamál daginn eftir og glerbrot og dósir víða í, við eða á múrnum.

Kínversk stjórnvöld vita af vandanum en erfitt að bregðast við enda sökum lengdar múrsins sem er á pari við sjö hringi um Ísland að lengd.