Ekki er útilokað að tafir verði á brottförum erlendis frá Keflavíkurflugvelli næstu þrjá dagana sökum verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands. Á þetta bæði við um flug Icelandair, Iceland Express og annarra flugfélaga sem fljúga frá Keflavík milli klukkan 06 og 10 á morgnana.
Boðaðar aðgerðir eiga við um 8.,9. og 10. júní og er fólk beðið um að fylgjast vel með hugsanlegum breytingum á brottförum þessa daga gegnum textavarpið eða á vef Keflavíkurflugvallar hér.
Í tilkynningu frá Icelandair er lýst yfir vonbrigðum með að flugvirkjar hafi ekki fallist á kjarasamninga sem eru á svipuðum nótum og samningar annarra stétta.







