Þó gosið í Grímsvötnum sé að líða undir lok hefur gosaska gert mönnum lífið leitt víða um Evrópu í dag. Flugvellir í Þýskalandi norðanverðu, Danmörku, Noregi og Frakklandi þurftu að loka tímabundið vegna ösku. Var flugvöllurinn í Berlín sá síðasti sem opnaði að nýju um fjögur leytið í dag.
Alls telst mönnum til að fella hafi þurft niður 1.200 áætlunarferðir í þessum löndum en ljóst er að ekki verða frekari truflanir á flugumferð vegna eldgossins nema í það bætist en það þykir ólíklegt.
Mun einhver aska áfram dreifast um Evrópu en hún þykir ekki nægilega mikil til að hafa áhrif á flugumferð umfram það sem orðið er.
Bandaríkjamenn sluppu heldur ekki alveg. Loka þurfti O´Hare flugvelli í Chicago vegna vinds og regns í dag og minnst 500 flug felld niður eða frestað meðan veðrið gekk niður.






